
Sveigjanlegar lausnir í bílarekstri með Hertz
Grunnhugmyndin að baki langtímaleigu Hertz er að leigja þér bíl á kjörum sem eru hagkvæmari en að kaupa bíl. Við erum stórkaupendur af bílum og allri tengdri þjónustu og eins og alltaf í slíkum viðskiptum njótum við magnafslátta í samræmi við það. Þeir afslættir endurspeglast síðan í leiguverðinu til þín.
Til viðbótar þessum ávinningi ert þú laus við allskyns áhættu sem fylgir óvæntum útgjöldum í rekstri, viðhaldi og endursölu bíla. Það að standa í að kaupa og selja bíla getur bæði verið kostnaðarsamt og tímafrekt og því til mikils að vinna að sleppa við slíkt. Í upphafi og lok leigutíma þá skiptumst við einfaldlega á lyklum.
Starfsmenn Hertz hafa langa reynslu úr bílgreininni. Sú þekking og reynsla endurspeglast síðan í hagkvæmri og þægilegri lausn á þínum bílarekstri. Þér eru allir vegir færir með Hertz.
Sveigjanlegur leigutími
Leigusamningar eru að jafnaði 12-36 mánuðir en hluti af sveigjanleikanum sem þú nýtur er að samningar geta verið hvort heldur er styttri eða lengri eftir því hvað hentar.
Einnig bjóðum við upp á vetrarleigu frá september til maí fyrir þá viðskiptavini sem þurfa einungis að hafa bíl yfir vetrartímann.
Jafnframt getum við breytt forsendum á samningstímanum ef aðstæður breytast og gerum okkar ítrasta til að slíkt hafi lágmarkskostnað í för með sér.


Ferlið er einfalt
Það hefur aldrei verið jafn einfalt og þægilegt að finna bíl í langtímaleigu!
Skoða úrvalið
Þú getur skoðað alla bíla hér á vefnum eða haft samband og fengið aðstoð hjá þjónustufulltrúa.
Sækja um
Þegar rétti bíllinn er fundinn þá sækir þú um á vefnum eða hjá þjónustufulltrúa. Við framkvæmum þá lánshæfismat og ef allt er í lagi þá klárum við samninginn.
Fá bílinn afhentan
Þú mætir á umsömdum tíma og færð bílinn í hendurnar, hreinan og fínan.
Njóta!
Þú nýtur þess að aka um áhyggjulaus og hefur svo samband við okkur ef það er eitthvað sem við getum aðstoðað þig með.
