Tímapantanir í þjónustu

Hér getur þú pantað tíma í þjónustu fyrir bílinn þinn

Þjónusta fyrir langtímaleigu hjá Hertz

Með langtímaleigu hjá Hertz fylgir fjölbreytt þjónusta. Þú getur bókað tíma í þá þjónustu sem er innifalin hér fyrir neðan.

Þjónustustaðsetning: Ef þú vilt nýta þjónustu á öðrum stað en þeim sem eru taldir upp hér að neðan, hafðu þá samband við viðkomandi þjónustustöð.

Peruskipti og rúðuþurrkur:
Komdu á Flugvallarveg 5 eða Selhellu 5 milli kl. 09:00–11:30 eða 13:00–15:30.
Ath. að bókun er ekki nauðsynleg í þessa þjónustu.

Tilboðsbílar

Kynntu þér úrval bíla á sérstökum kjörum akkúrat núna

Geymslustæði tímabundið lokað við flugvöllinn

Vegna framkvæmda hjá Isavia og Hertz í Keflavík eru bókanir í geymslustæði okkar við flugvöllinn tímabundið ekki í boði.

Sérkjör hjá Car Park
Viðskiptavinir Hertz fá 20% afslátt hjá Car Park með kóðanum hertz á www.carpark.is
Athugið: Hertz ber ekki ábyrgð á þjónustu Car Park.

Þjónusta Car Park innifelur:

  • Vöktuð og upplýst svæði

  • Bíllinn geymdur á sama stað allan tímann

  • Skutluþjónusta frá kl. 04:00 til síðustu lendingar

  • Aukaþjónusta á staðnum

Bókanir með stuttum fyrirvara
Hringdu í 588-9999 (20 mínútum fyrir komu)

Óákveðin heimkoma?
Sendu póst á info@carpark.is – dagsetningu má staðfesta síðar

Spurningar og svör vegna þjónustu

Hér fyrir neðan eru algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að hafðu þá endilega samband og við segjum þér allt sem þú vilt vita.

Hvað er langur biðtími eftir þjónustu?

Við reynum að koma öllum að eins fljótt og hægt er eða á þeim tímum sem óskað er eftir, en í bókunarvélinni fyrir tímapantanir hér á síðunni má sjá hvaða tímar eru lausir. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í síma 522 44 00.

Hvaða þjónusta er innifalin?

Öll helsta þjónusta við bílinn er innifalin í leigunni, þar með talið þjónustuskoðanir, smurning, viðgerðir og skipti á perum og rúðuþurrkum. 

Hvenær fæ ég bílinn aftur?

Ef þú átt bókaðan tíma hjá okkur þá reynum við alltaf að klára þjónustuna innan dagsins svo þú fáir hann aftur samdægurs.

Ef eitthvað gerir það að verkum að ekki er unnt að afhenda bílinn aftur samdægurs þá látum við þig vita og finnum út úr því saman.

Hvernig bóka ég tíma í þjónustu?

Þú gerir það hér á vefsíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 522 44 00.

Hvernig bóka ég tjónaviðgerð?

Hér á síðunni er hægt að bóka tíma í reglubundna þjónustu en ekki í tjónaviðgerðir.

Í tilfelli tjóna er best að hafa beint samband í síma 522 44 00 eða á netfangið langtimaleiga@hertz.is

Þarf ég að koma með bílinn eða er hann sóttur?

Leigutaki þarf að mæta með bílinn á starfsstöðina þar sem þjónustan var bókuð, á þeim tíma sem bókað var. Að þjónustu lokinni þarf leigutaki að sækja bílinn.