FLEX sameinast langtímaleigu Hertz

Hertz er leiðandi bílaleiga á Íslandi og við hlökkum til að veita þér áfram framúrskarandi þjónustu

Áfram veginn með Hertz

Nú hefur Hertz á Íslandi tekið yfir allan rekstur FLEX sem þýðir að héðan í frá mun Hertz sinna þeim bílaflota og útleigustarfsemi sem FLEX hefur hingað til gert. Það þýðir einnig að héðan í frá verður Hertz þjónustuaðili allra ökutækja sem áður voru hjá FLEX.

Engar áhyggjur, samningurinn þinn helst óbreyttur. Þú heldur sama bíl og sömu kjörum og áður. Það eina sem breytist er að reikningar berast nú frá Hertz í stað FLEX og ýmis þjónusta við bílinn mun núna eiga sér stað hjá Hertz í stað FLEX eða BL áður.

"Við erum mjög spennt fyrir þessum breytingum. Hertz er ein elsta og stærsta bílaleiga á landinu með fjölda bíla í bæði langtíma- og skammtímaleigu og starfsstöðvar víða um land og það eru ýmsir kostir sem fylgja því fyrir viðskiptavini FLEX að verða hluti af stærri heild. Við munum kappkosta við að veita þeim sömu góðu þjónustu og þau fengu hjá FLEX."

- Sigurður Berndsen, forstjóri Hertz á Íslandi

Kostir fyrir þig

Meira – á einfaldari hátt

  • Stærri bílafloti
  • Setja greiðslur á kreditkort
  • Vildarpunktar Icelandair
  • Hagstæð skammtímaleiga
  • Hröð neyðarþjónusta
  • Fleiri þjónustustaðir

Hagnýtar upplýsingar

Hertz er leiðandi bílaleiga á Íslandi með víðtækt net þjónustustöðva og áratuga reynslu. Við hlökkum til að veita þér áfram framúrskarandi þjónustu.

Greiðslur

Greiðslutímabil Hertz er örlítið frábrugðið því sem var hjá FLEX, en þú finnur aðeins mun á fyrstu og síðustu greiðslu. Í heildina greiðir þú nákvæmlega jafn mikið.

Dekkjaskipti

Ekkert breytist – þú bókar áfram tíma hjá Kletti líkt og áður í síma 590-5100 eða á klettur.is. Mundu bara að láta vita að þetta er Hertz/FLEX bíll.

Reglubundin þjónusta

Bókaðu tíma hjá Hertz hér á síðunni eða hringdu í síma 522-4400.

Skil á bíl

Skilaðu bílnum að Flugvallarvegi 5 í Reykjavík eða Selhellu 5 í Hafnarfirði.