Viðmið varðandi not og slit á ökutækjum í langtímaleigu

Hér eru tilgreind þau viðmið sem eru notuð við mat á því sem telst eðlilegt og ekki eðlilegt varðandi ástand ökutækja þegar þeim er skilað að leigutíma loknum. Mat er ávallt háð aldri ökutækja og akstursnotkun í samræmi við samninga.

Við matið er ávallt reynt að meta ástand ökutækja með sanngjörnum hætti og leitast við að lagfæra hluti frekar en að endurnýja þá.

Ástandsskoðun ökutækja við lok samningstíma fer fram hjá Hertz eða hjá aðila sem Hertz útnefnir. Ökutæki fara í gegnum staðlaða ástandsskoðun og heildarástand ökutækis metið. Við ástandsskoðun er gert matsyfirlit þar sem tilgreindar eru niðurstöður s.s. tjón, gallar og það sem vantar miðað við upprunalega lýsingu á ökutæki.

Ökutækinu þarf að skila með öllum þeim hlutum sem fylgdu því við afhendingu — þar á meðal lyklum, mottum og lausum aukahlutum. Brotin eða sprungin rúða, speglar eða stuðarar teljast einnig ekki í lagi.

Hér fyrir neðan má sjá dæmi og myndir sem sýna hvað telst eðlilegt slit á bíl og hvað telst ekki vera í lagi. Reglurnar um mat á ástandi bíla að samningstíma loknum eru unnar í samráði við fagaðila og veita skýra mynd af því hvaða ástand telst ásættanlegt.

Leigutakar bera ábyrgð á að kynna sér þessar reglur og tryggja að allir sem nota bílinn séu meðvitaðir um þær.

Þegar bílnum er skilað fer matsaðili yfir ástand hans. Ef skemmdir eða tjón finnast sem ekki teljast til eðlilegs slits, er útbúið matsyfirlit. Þar kemur fram hvaða atriði þarf að lagfæra og hver áætlaður kostnaður er.

Allir hlutir sem fylgdu bíl við upphaf samnings eiga að fylgja við skil á honum. Helstu atriði eru t.d:

  • Allir lyklar
  • Þjónustu- og smurbók
  • Hleðslusnúrur
  • Farangurshlíf (í skotti) og mottur
  • Þverbogar, skíða- og hjólafestingar
  • Varadekk
  • Verkfæri til hjólbarðaskipta eða viðgerða
  • Öryggisbúnaður s.s. þríhyrningur og sjúkrakassi

Eftirfarandi reglur gilda við skil á bílum úr leigu hjá Hertz

Lakk
Í lagi

Fá og lítil svæði þar sem steinkast hefur rispað lakkið, litið er til aldurs og akstursnotkunar í þessu samhengi.

Grunnar rispur og skemmdir sem hægt er að lagfæra með mössun eða bóni.

Hér er lítið svæði þar sem hoggið er upp úr lakkinu. Hér er mögulegt að koma í veg fyrir frekari skemmdir með því að mála í lakkið áður en ryð byrjar að myndast. Þetta telst í lagi ef hægt er að grípa inn í tímanlega með notkun réttra efna við lagfæringu.

Lakkaðir stuðarar með grunnum rispum sem hafa ekki farið í gegnum lakkið.

Stuðarar sem ekki eru lakkaðir með grunnar rispur teljast í lagi, einnig litlar dældir allt að 20 mm í þvermál.

Rispur á hliðarspeglum, ekki stærri en 50 mm, á ómáluðum speglum. Á lökkuðum speglum má rispan ekki hafa náð niður í ál eða grunnefni spegilsins. Spegillinn þarf að vera að öllu leyti óbrotinn og hæfur til notkunar.

Nauðsynlegt er að ljós og annar búnaður sem festur hefur verið á ökutækið sé að öllu leyti hæfur til notkunar. Eins ef slíkur búnaður hefur verið fjarlægður í lok leigutíma, að gengið hafi verið frá eftir festingar þannig að ekki sjái á.

Ekki í lagi

Óeðlilega mikið magn steinhögga í lakkinu. Höggin hafa farið í gegnum lakkið og/eða ryð byrjað að myndast. Hér er þó litið til aldurs ökutækis og fjölda ekinna kílómetra.

Högg, dældir, beyglur og rispur með skemmdum á lakki og eru byrjuð að sýna merki um skemmdir.

Rispur eða skemmdir sem ná í gegnum lakkið eru ekki í lagi. Ryðskemmdir eru ekki í lagi. Steinkast má ekki að hafa hoggið úr lakkinu.

Brotið eða sprungið grill eða merki telst ekki í lagi.

Stórar rispur, dældir eða skemmdir sem ná yfir 20 mm í þvermál.

Umtalsvert tjón á speglum þar sem rispur eru það miklar að þær ná niður í gegnum lakk.

Miklar skemmdir á spegli og hann skakkur. Einnig þarf ljósbúnaður sem festur hefur verið á ökutækið að vera á sínum stað og án skemmda.

Framhluti / stuðarar
Í lagi

Í mesta lagi tvær litlar skemmdir á stuðara.

Smávægileg litabreyting á stuðara, svo sem eins og eftir veðrun.

Ekki í lagi

Áberandi mikla rispur á stuðara. Skemmd má ekki ná í gegnum lakkið.

Rispur sem ná yfir stóran hluta og valda skemmdum á grunnefni stuðara.

Gler og ljósabúnaður
Í lagi

Högg vegna steinkasts eða rispur í gleri (ekki stærri en 10 mm), svo lengi sem það truflar eða hindrar ekki ökumann við akstur.

Högg eftir steinkast eða annað í ljósabúnað ökutækis eða rispur sem ekki hamla notkun búnaðarins.

Ekki í lagi

Sprunga eða brot í ljósabúnaði sem hindrar eðlilega virkni búnaðarins. Ljósaperur þurfa að vera heilar og í lagi. Ennfremur er brot eða sprunga í rúðu ökutækis (stærri en 10 mm) ekki í lagi.

Högg í ljósabúnað sem hefur valdið sprungu og broti í gleri, óháð stærð brots.

Hjólabúnaður og felgur
Í lagi

Mynstursdýpt á dekkjum sé í samræmi við kílómetrastöðu og dekk séu jafnslitin undir bílnum.

Smáar rispur eða hnoð á felgum.

Grunnar rispur á felgum, svo lengi sem beygla hefur ekki myndast á felgunni.

Felguboltar án alls ryðs og annarra skemmda.

Ekki í lagi

Dekkjaskemmdir vegna slæmrar meðferðar. Ójafnt slit dekkja er ekki í lagi.

Sprungur, bólgur eða skurðir á dekkjum eða aðrar skemmdir á hlið þeirra.

Sprungur, bólgur eða skurðir á dekkjum eða aðrar skemmdir á hlið þeirra.

Beyglaðar eða brotnar felgur eða sprungur á felgum. Miklar rispur og brot í felgum.

Innra rými, loft og sæti
Í lagi

Eðlilegt slit á sætum, eins og við það að fara inn og út úr ökutæki.

Skyggni sem umgangur sést á, þ.e. það sem teljast má eðlileg notkun.

Smávægilegar litabreytingar sem eðlilegar mega teljast miðað við daglega notkun ökutækis.

Ekki í lagi

Umtalsvert slit og óhreinindi sem ekki er hægt að þrífa með góðu móti. Rifin bólstrun eða göt.

Mjög skítugt loft í ökutæki sem ekki er hægt að þrífa með hefðbundnum þrifum. Rispur, rákir, rifur, beyglur eða skurðir í efni eru ekki í lagi.

Leigutaka er óheimilt að reykja í ökutækinu. Á það einnig við um rafrettur.

Mælaborð, stýri, teppi og mottur
Í lagi

Það sem teljast má eðlilegt slit á teppi og mottum.

Notkun sést á stýri ökutækis, en einungis þannig að eðlilegt geti talist m.v. notkun.

Ekki í lagi

Rifur eða göt í teppi eða mottum.

Skemmdir á innra rými ökutækis sem ekki telst hluti af eðlilegri umgengni um ökutæki. Svo sem brot eða skemmdir á hlífum.

Bæklingur um not og slit

Hér er hægt að sækja PDF útgáfu af reglum um not og slit þar sem eru tilgreind þau viðmið sem notuð eru við mat á því sem telst eðlilegt og ekki eðlilegt þegar kemur að ástandi ökutækja þegar þeim er skilað að leigutíma loknum.