
Safnaðu fyrir fríinu með langtímaleigu Hertz
Taktu bíl í langtímaleigu og safnaðu fyrir fríinu í leiðinni. 1000 eða 2000 Vildarpunktar Icelandair í hverjum mánuði.
Innifalin þjónusta í langtímaleigu
Viðskiptavinir okkar keyra um áhyggjulausir og mæta svo með bílinn í þjónustu þegar þörf er á.

Skoðum allt sem þarf

Regluleg smurning

Dekkjaskipti og dekkjahótel

Bíllinn alltaf í toppstandi
Sveigjanlegur leigutími
Leigusamningar í langtímaleigu eru venjulega á bilinu 12-36 mánuðir en hluti af sveigjanleikanum sem þú nýtur er að samningar geta verið hvort heldur er styttri eða lengri eftir því hvað hentar.
Einnig bjóðum við upp á vetrarleigu frá september til maí fyrir þá viðskiptavini sem þurfa einungis að hafa bíl yfir vetrartímann eða hluta af vetrinum, t.d. í 3-4 mánuði um vetur.
Samningar eru bindandi en ef aðstæður breytast á leigutímanum þá reynum við að finna út úr því með leigutökum og gerum okkar ítrasta til að slíkt hafi lágmarkskostnað í för með sér.



Hvernig getur verið hagkvæmara að leigja en að eiga bíl?
Hertz er stórkaupandi af bílum og allri þjónustu sem þeim tengist og því njótum við bestu kjara hjá öllum okkar birgjum. Þeir magnafslættir endurspeglast síðan í leiguverðinu þannig að þú nýtur góðs af.
Þú sérð um orkuna!
Þegar þú leigir bíl hjá Hertz þá þarft þú aðeins að sjá bílnum fyrir orku, við sjáum um rest!

Þú sérð um orkuna, Hertz sér um rest:
- Þjónustuskoðanir
- Smurþjónusta
- Dekkjaþjónusta
- Viðhald
- Tryggingar
- Bifreiðagjöld
Ferlið er einfalt
Það hefur aldrei verið jafn einfalt og þægilegt að finna bíl í langtímaleigu!
Skoða úrvalið
Þú getur skoðað alla bíla hér á vefnum eða haft samband og fengið aðstoð hjá þjónustufulltrúa.
Sækja um
Þegar rétti bíllinn er fundinn þá sækir þú um á vefnum eða hjá þjónustufulltrúa. Við framkvæmum þá lánshæfismat og ef allt er í lagi þá klárum við samninginn.
Fá bílinn afhentan
Þú mætir á umsömdum tíma og færð bílinn í hendurnar, hreinan og fínan.
Njóta!
Þú nýtur þess að aka um áhyggjulaus og hefur svo samband við okkur ef það er eitthvað sem við getum aðstoðað þig með.
Engar áhyggjur af viðhaldi og veseni
Viðskiptavinir okkar keyra um áhyggjulausir og mæta svo með bílinn í þjónustu þegar þörf er á.

Skoðum allt sem þarf

Regluleg smurning

Dekkjaskipti og dekkjahótel

Bíllinn alltaf í toppstandi
Algengar spurningar og svör
Hér eru algengar spurningar og svör við þeim. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að hafðu þá endilega samband og við segjum þér allt sem þú vilt vita.
Það getur verið erfitt að komast hjá því að bílar verði fyrir einhverjum skemmdum. Ef skemmdir á bíl eða slit eru meiri en það sem eðlilegt má teljast þarf leigutaki að greiða aukalega fyrir það. Hvað er eðlilegt slit? Skoðaðu málið undir "Not og slit" hér á síðunni.
Samningur um leigutíma er bindandi og að skila bíl fyrr en ella getur haft kostnað í för með sér. Ef upp koma óvæntar aðstæður er mikilvægt að hafa samband sem fyrst svo við getum fundið farsæla lausn í sameiningu.
Við leggjum okkur fram um að afgreiða bíla í langtímaleigu með eins skömmum fyrirvara og kostur er. Gera má ráð fyrir að afgreiðslutími geti verið 1-5 dagar eftir tilfellum. Afgreiðslutíminn getur hins vegar farið eftir árstíma, staðsetningu bílsins og fleiri þáttum.
Nei, undir engum kringumstæðum er heimilt að fara með bíl frá Hertz til útlanda.
Hertz langtímaleiga hefur aðsetur á Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður, og eru bílar oftast afhentir þar. Hægt er að óska eftir afhendingu á öðrum leigustöðvum Hertz en hafa ber í huga að það getur haft áhrif á afhendingartíma.
Hertz langtímaleiga hefur aðsetur í Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður og er bílum almennt skilað þar. Hægt er að óska eftir að skila á öðrum leigustöðvum Hertz ef það hentar betur.
Ef bíllinn verður fyrir tjóni þarf að hafa samband við Hertz og láta vita, og þú færð leiðbeiningar um hver eru næstu skref.
Afgreiðsla langtímaleigu Hertz að Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður er opin frá 8:00 til 16:00 mán. - fös.
Lokað er á laugardögum og sunnudögum.