
Þann 1. janúar 2026 tóku ný lög um kílómetragjöld gildi
Með þessum lögum færist skattinnheimtan úr eldsneytisgjaldi sem innheimt var með hverjum keyptum eldsneytis lítra yfir á ökutækið sjálft í formi kílómetragjalds. Þessi skattabreyting tók gildi 1. janúar og felur í sér þá breytingu að innheimt verður kílómetragjald (skattur) af hverjum eknum kílómetra af bílum í langtímaleigu.
Ásamt kílómetragjaldi er innheimt umsýslu- og innheimtugjald þar sem fyrirséð er innleiðing nýs kerfis um kílómetragjöld hefur í för með sér verulegan kostnað vegna utanumhalds, gagnameðhöndlunar, innheimtu og skilagreiðslna til ríkisins.
Kílómetragjald (skattur): 6,95 kr. per ekinn kílómeter.
Umsýslu- og innheimtugjald: 1.790.kr (1.444.kr án vsk) mánaðarlega.
Nánari upplýsingar um þessi breytingu og nýju lög má finna á www.vegirokkarallra.is