Algengar spurningar og svör
Hér fyrir neðan eru algengar spurningar og svör. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að hafðu þá endilega samband og við segjum þér allt sem þú vilt vita.
Það getur verið erfitt að komast hjá því að bílar verði fyrir einhverjum skemmdum. Ef skemmdir á bíl eða slit eru meiri en það sem eðlilegt má teljast þarf leigutaki að greiða aukalega fyrir það. Hvað er eðlilegt slit? Skoðaðu málið undir "Not og slit" hér á síðunni.
Samningur um leigutíma er bindandi og að skila bíl fyrr en ella getur haft kostnað í för með sér. Ef upp koma óvæntar aðstæður er mikilvægt að hafa samband sem fyrst svo við getum fundið farsæla lausn í sameiningu.
Við leggjum okkur fram um að afgreiða bíla í langtímaleigu með eins skömmum fyrirvara og kostur er. Gera má ráð fyrir að afgreiðslutími geti verið 1-5 dagar eftir tilfellum. Afgreiðslutíminn getur hins vegar farið eftir árstíma, staðsetningu bílsins og fleiri þáttum.
Nei, undir engum kringumstæðum er heimilt að fara með bíl frá Hertz til útlanda.
Hertz langtímaleiga hefur aðsetur á Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður, og eru bílar oftast afhentir þar. Hægt er að óska eftir afhendingu á öðrum leigustöðvum Hertz en hafa ber í huga að það getur haft áhrif á afhendingartíma.
Hertz langtímaleiga hefur aðsetur í Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður og er bílum almennt skilað þar. Hægt er að óska eftir að skila á öðrum leigustöðvum Hertz ef það hentar betur.
Ef bíllinn verður fyrir tjóni þarf að hafa samband við Hertz og láta vita, og þú færð leiðbeiningar um hver eru næstu skref.
Afgreiðsla langtímaleigu Hertz að Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður er opin frá 8:00 til 16:00 mán. - fös.
Lokað er á laugardögum og sunnudögum.