Tryggingar og sjálfsábyrgð

Leigugjaldið inniheldur lögbundnar ökutækjatryggingar: ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda, samkvæmt íslenskum lögum.

Sjálfsábyrgð vegna tjóns getur numið allt að fullu verðmæti ökutækis. Með því að bæta við CDW eða SCDW tryggingu getur leigutaki lækkað þessa ábyrgð, samkvæmt verðskrá.

Athugið: Þó viðbótartrygging hafi verið greidd, þarf leigutaki alltaf að greiða lágmarksupphæð ef tjón verður – sú upphæð er tilgreind í verðskrá Hertz.

Ein sjálfsábyrgð gildir aðeins fyrir eitt óhapp. Ef fleiri tjón verða sem ekki tengjast sama atviki, gildir sjálfstæð sjálfsábyrgð fyrir hvert þeirra.

Nánar um mismunandi tryggingar

Ef þú hefur frekari spurningar hafðu þá endilega samband við okkur.

Standard

Innifalin í öllum langtímaleigusamningum

Minni bílar: Sjálfsábyrgð 175.000 kr. Engin framrúðuvernd

Stærri bílar: 
Sjálfsábyrgð 195.000 kr. Engin framrúðuvernd

Super

Viðbótar ökutækjavernd

Minni bílar: Aukalega 6.090 kr. á mánuði.
Lækkar sjálfsábyrgðina úr 175.000 kr. í 15.000 kr. Engin framrúðuvernd

Stærri bílar: Aukalega 7.390 kr. á mánuði.
Lækkar sjálfsábyrgðina úr 195.000 kr. í 24.000 kr. Engin framrúðuvernd

Super+

Viðbótar ökutækjavernd

Minni bílar: Aukalega 8.590 kr. á mánuði.
Lækkar sjálfsábyrgðina úr 175.000 kr. í 15.000 kr. Framrúðuvernd innifalin

Stærri bílar: Aukalega 9.890 kr. á mánuði.
Lækkar sjálfsábyrgðina úr 195.000 kr. í 24.000 kr. Framrúðuvernd innifalin

Sjálfsábyrgð í framrúðuvernd er 0 kr.